

Myndin sýnir Krülland ferhyrnda einingasundlaug með hefðbundnum veggyfirföllum. Veggir laugarinnar eru 68 mm þykkir, gerðir af varmaplast einangrun og klæddir vatnsþétt með málmplötum á báðum hliðumlíkt og samlokueiningar. Þeir eru gerðir í uþb 5 m löngum einingum, sem tengjast hver annarri með sérstökum læsingum. Ef lengd veggjar er ekki deilanleg með tölunni 5 er ein einingineða fleirigerð(ar) styttri. Þannig má gera beinan vegg af hvaða lengd sem er og því er stærð laugarinnar í raun eingin takmörk sett. Sérstakar læsingar eru gerðar fyrir hornin. Vatnshæðin við vegg getur verið allt að 1,80 m í dýpri enda laugarinnar (flæðilaugar).
Botninn myndast af steinsteyptri og járnbentri burðarplötu, sem mótuð er eins og sýnt er á mynd. Veggirnir eru reistir á álramma, sem festur er við kant burðarplötunnar. Samfelldur dúkur þekur veggi og botn laugarinnar.
Krülland-rennan fyrir flæðilaugar er sýnd á samsettri mynd að ofan. Efst til vinstri sést hvernig hægt er að rúlla grindinni upp þegar rennan er hreinsuð. Neðst til vinstri er þverskurður í gegnum rennuna, sem sýnir hvernig hægt er að stilla kant laugarinnar nákvæmleg í hæð við vatnsyfirborð eftir að gengið hefir verið frá lauginni og hún fyllt af vatni. Til hægri er horn laugarinnar séð ofanfrá. Sjá ennfremur kaflann um nauðsynlega aukahluti.
Eftirfarandi er a finna á sérstökum vefsíðum (veljið undirstrikað)
Hringlaga sundlaugar
allt að 16,7 metra í þvermál eða 220 fermetrar
að flatarmáli
Aflangar sundlaugar
með hringlaga endum og beinum veggjum á milli
Samsettar sundlaugar
samsettar úr tveimur eða fleiri hringlaga einingum
Nauðsynlegir
aukahlutir
yfirföll, stútar, niðurföll, ljóskastarar,
stigar osfrv
Dælu- og
hreinsibúnaður
í stökum hlutum eða tilbúnum samsettum einingum
Sérbúnaður
fyrir sundgarða
yfirbreiðslur, pottar, þjálfunarbúnaður
osfrv
Krülland ferhyrnd einingasundlaug
af stærðinni 16,7X6 m,
1,5 m jafndjúp, hefir verið í notkun á
Suðureyri við Súgandafjörð
í ellefu ár (síðan 1992).
Sundlaugar eru fyrir okkur öll!
Glósalir 7, íbúð 704 - 201 Kópavogur
Skrifborð: 5622524 - Myndsími:
5621592
Brjóstvasi: 8961892 - Tölvupóstur: ingvar@ingvar.is
Síðast uppfært: Thursday 13/7/06 10:46