Krülland hreinsibúnaður


Líkt og allur annar búnaður frá Krülland er hreinsibúnaður fyrir vatnið gerður í samsettum einingum, tilbúnum til uppsetningar. Mynd hér að neðan sýnir eitt slíkt fullbúið dælukerfi; aðalhlutar þess eru sandsía, hringrásardæla og 6-stúta loki til að bakþvo síuna. Einnig er hægt að kaupa þessa hluti lausa, hvern fyrir sig. Dælukerfið er framleitt í þremur stærðum, með 6,0, 10,0 og 15,0 m3/klst afköstum. Setja má tvö eða fleiri dælukerfi hlið við hlið uns réttum afköstum er náð (sjá mynd af dælustöð neðar á síðunni). Allmargir kostir fylgja því að hafa fleiri en eitt dælukerfi; ber auðvitað hæst rekstraröryggi, en auðveldara er að bakþvo ef kerfin eru fleiri og minni. Neðst á síðunni má svo sjá sjálfvirk botnhreinsitæki - 'Baracuda' og 'Aquacat'.


Krülland sambyggt dælukerfi


Krülland dælustöð fyrir stóran sundgarð
(sjö dælukerfi vinna hlið við hlið)


Krülland sjálfvirk botnhreinsitæki
til vinstri: 'Baracuda' - til hægri: 'Aquacat'


Eftirfarandi er a finna á sérstökum síðum (veljið undirstrikað):

Ferhyrndar sundlaugar
með eða án yfirfallsrennu, jafndjúpar eða misdjúpar

Hringlaga sundlaugar
allt að 16 metra í þvermál eða 200 m2 að flatarmáli

Aflangar sundlaugar
með hringlaga endum og beinum vegg á milli

Samsettar sundlaugar
samsettar úr tveimur eða fleiri hringlaga einingum

Nauðsynlegir aukahlutir
yfirföll, stútar, niðurföll, ljóskastarar, stigar osfrv

Sérbúnaður fyrir sundgarða
yfirbreiðslur, pottar, þjálfunarbúnaður osfrv


Sundlaugar eru fyrir okkur öll!

Glósalir 7, íbúð 704 - 201 Kópavogur

Skrifborð: 5622524 - Myndsími: 5621592
Brjóstvasi: 8961892 - Tölvupóstur: ingvar@ingvar.is

Síðast uppfært: Thursday, 13/7/06 10:45