Hringlaga einingasundlaugar
Krülland hringlaga einingasundlaug með hefðbundnum veggyfirföllum. Hringlaga einingasundlaugar nýtast afar vel í ferðaþjónustu; hvar sem er í lauginni er (jafn) langt milli veggja. Hringlaga sundlaugar eru fáanlegar með allt að 16,7 metra þvermáli eða 220 m2 flatarmáli. Þær geta verið 75 til 150 cm djúpar að ósk kaupenda. Þá henta litlar hringlaga sundlaugar ágætlega sem barnalaugar og heitir pottar.
![]()
Skýringarmyndin sýnir hvernig Krülland hringlaga einingasundlaug er byggð upp. Veggur laugarinnar myndast með lóðréttri málmgjörð, en steinsteypt og járnbent burðarplata myndar botninn. Samfelldur dúkur þekur veggi og botn. Minni gerðirnar eru sjálfberandi og geta staðið á sléttri jörð, án stuðnings frá jarðveginum. Sjá ennfremur kaflann um nauðsynlega aukahluti.
Eftirfarandi er a finna á sérstökum síðum (veljið undirstrikað):
Ferhyrndar
sundlaugar
með eða án yfirfallsrennu, jafndjúpar eða misdjúpar
Aflangar
sundlaugar
með hringlaga endum og beinum vegg á milli
Samsettar sundlaugar
samsettar úr tveimur eða fleiri hringlaga einingum
Nauðsynlegir
aukahlutir
yfirföll, stútar, niðurföll, ljóskastarar,
stigar osfrv
Dælu-
og hreinsibúnaður
í stökum hlutum eða tilbúnum samsettum einingum
Sérbúnaður
fyrir sundgarða
yfirbreiðslur, pottar, þjálfunarbúnaður osfrv
Krülland hringlaga einingasundlaug, 12,5 m í þvermál
eða 123 m2 að flatarmáli, hefir verið í
notkun í Flosalaug
að Svínafelli í Öræfum í níu ár
(síðan í júní 1994).
Glósalir 7, íbúð 704 - 201 Kópavogur
Síðast uppfært: Thursday, 13/7/06 10:16