'Riv-Air' loftskrúfubátur
gerð 7000 - 5,0 m langur

 Hinn svokallaði 'Riv-Air' loftskrúfubátur er allur gerður úr áli. Botninn er styrktur með langböndum og þverstífum, en ofan á þeim liggur botnplata úr áli, sem hvílir á botngrindinni á hljóðdeyfandi millileggjum. Hliðar bátsins eru 60 sm háar með 8 sm lunningu, eða alls tæplega 70 sm háar. Botninn er klæddur 10 mm þykku UMHW plasti, sem fest er með sjálfgengjandi skrúfum. Fremst í bátnum er framdekk eða þilfar, rúmur meter að lengd, og aftan í honum er afturdekk 1,5 m langt. Geymsluhólf eru undir báðum dekkjunum. Eftir hliðum bátsins endilöngum eru borðstokkar, en reipislykkja og þverslá að framan.

 Stjórnstöð er í stafni og gengið inn um miðja framrúðuna. Í stjórnstöðinni eru tvö sæti - fyrir skipstjóra og ferðalang - og innbyggt stjórnborð með mælum og rofum. Í stjórnborðinu eru hraðamælir, olíuþrýstimælir, vatnshitmælir, undirþrýstimælir (vacuum), spennumælir, tímamælir, bensínmælir, kveikjulykill, rofi fyrir jafnvægisspjöld, rofi fyrir kjalsogsdælu, ljósarofi og tengill. Stýrisstengurnar eru beintengdar við stýrispjöldin, sem hreifast í gerfiefnalegum að ofan og neðan og ekki þarf að smyrja.

 'Riv-Air' loftskrúfubáturinn er knúinn Premium 350 hestafla (~260 kW) Chevy Marine Engine með sérstakri yfirborðsmeðferð. Vélin situr á mjúkum undirstöðum á sérsmíðuðum stálramma. Hún er kæld á hefðbundinn hátt með Nas-Car vatnskassa úr áli, sem búinn er yfirfallsflösku úr plasti og þenslugeymi úr áli. Hljóðdeyfir, safnrör ('headers') og sveigjanleg tengirör eru úr ryðfríu stáli og búin festingum. Bensíngjöfin er fótstigin, líkt og í bifreiðum, og tengist vélinni með sveigjanlegum kapli, sem ekki þarf að smyrja.

 Loftskrúfan er frá 'Air Props'. Hún er sérhönnuð og búin breiðum blöðum, sem draga úr hávaða. Rafmagns- og vökvastýrð jafnvægisspjöld ('Insta-Trim') eru 46 sm breið. Öryggishlíf yfir loftskrúfu er klædd vírneti með 5 X 10 sm möskva.

 Einfalt eldsneytiskerfi, sem viðurkennt er af bandarísku strandgæslunni, er byggt upp af af 96 lítra geymi búnum sameiginlegum áfylli- og loftunarstút og sveigjanlegri slöngu. Þá fylgir bátnum rafgeymir og kassi fyrir hann ásamt tilheyrandi festingum og leiðslum.

 Kjalsogskerfið samanstendur af 3000 lít/mín dælu, sem stýrt er með rofa í stjórnstöð.